
CJC Síuafhending
- Kerfisstjóri
Framtak Blossi afhendir í dag CJC síuskilju af gerðinni PTU3 27/108 MZ-E2PW (16-4,BLAT) eins og sést hér á myndinni
Síuskiljan er ætluð til hreinsunar á smurolíu á hverfli í orkuveri.
Eins og aðrar síuskiljur frá CJC fjarlægir hún vatn úr olíunni um leið og hún hreinsar burt óhreinindi allt að 0,8µ
Þetta er 16. sían af þessari útfærslu sem fer í notkun hér og bætist í hóp rúmlega 300 síukerfa frá CJC af ýmsum útfærslum sem hreinsa í dag olíur af ýmsum tegundum vökva, eldsneytis og smurolíukerfa á Íslandi í dag.